
Ein nótt í superior herbergi á Hótel Berg,
þriggja rétta kvöldverður á Fiskbarnum,
freyðivínsflaska í herbergi við komu ásamt glaðningi frá Sóley Organics
& morgunverður daginn eftir.
Í boði er að bæta við vínpörun með matnum á 10.000 kr.
Hótel Berg sem staðsett er við smábátahöfnina í Keflavík er sannarlega staður fyrir alla þá sem vilja njóta vel & skapa góðar minningar.
Fiskbarinn er glænýr veitingastaður með áherslu á sjávarrétti og grænmeti úr nærumhverfi.
Það er tilvalið að skoða Reykjanesið fyrir eða eftir dvöl á Hótel Berg. Reykjanesið, sem er partur af Unesco Geopark, hefur að geyma margar fallegar náttúruperlur sem vert er að skoða. Á góðum degi er hægt að keyra um allt Reykjanesið, upplifa og ljósmynda hina ýmsu staði svo sem Kleifarvatn, Brúna á milli heimsálfa, Reykjanesvita, Gunnuhver & Brimketil svo fátt eitt sé nefnt.
Gildir fyrir tvo.
Gjafabréfið gildir í 12 mánuði frá útgáfudegi.