
Gefðu upplifun fyrir þann sem þér þykir vænt um. Gjafabréf á Hótel Berg er tilvalin gjöf.
Innifalið ein eða tvær nætur á Hótel Berg,
ásamt morgunverði.
Hótel Berg er sérlega skemmtilegt 36 herbergja "boutique" hótel, sem staðsett er við smábátahöfnina í Keflavík. Það er sannarlega staður fyrir alla þá sem vilja njóta vel & skapa góðar minningar.
Á hótelinu er nýlegur og afar vandaður veitingastaður, Fiskbarinn, þar sem áherslan er lögð á ferskt og gott hráefni og gott andrúmsloft.
Þá er einnig heitur útipottur á efri hæð hótelsins, sem snýr í átt að höfninni.
Það er tilvalið að skoða Reykjanesið fyrir eða eftir dvöl á Hótel Berg. Reykjanesið, sem er partur af Unesco Geopark, hefur að geyma margar fallegar náttúruperlur sem vert er að skoða. Á góðum degi er hægt að keyra um allt Reykjanesið, upplifa og ljósmynda hina ýmsu staði svo sem Kleifarvatn, Brúna á milli heimsálfa, Reykjanesvita, Gunnuhver & Brimketil svo fátt eitt sé nefnt.
Gildir fyrir tvo.
Bókunartímabilið er til 30. nóvember 2023.
Ekki hægt að bóka frá 1. júní - 31. okt.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á berg@hotelberg.is til að bóka dagsetningu. Mikilvægt er að taka fram númerið á tilboðinu.
------------